Villandi upplýsingar veðurstofu og frétta.


Þegar sagt er frá vindstyrk í veðurfréttum er nú talað um metra á sekúndu í staðinn fyrir stig. Hvoru tveggja segir afar lítið fyrir almennan hlustanda. Í flestum löndum evróðu er talað um kílómetra á klukkustund. Þannig var í fréttum að vindsveipurinn sem fór yfir Filipsseyjar fór á 380 kílómetrum á klukkustund, flestir vita hvað þetta þýðir.

mbl.is Fengu ekki mat í fjóra daga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Röng fyrirsögn

Samkvæmt þessari fyrirsögn mætti segja að Íslendingar hætti við gjadeyrishöftin. Fyrirsögnin væri rétt ef tekið hefði verið fram að Kúba ætli að afnema tvöfaldan gjaldmiðil.
mbl.is Kúba hættir með tvöfalt gjaldmiðlakerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Joschka Fischer fínn


Varla væri hægt að fá betri mann í samningshlutverkið en Joschka Fischer. Er eitthvað búið að gera í því máli eða er þetta bara draumsýn eins og milljarðarnar frá Noregi ?
Friðrik G Friðriksson fararstjóri hjá Vita
mbl.is Vill þýskan sáttasemjara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Röng skilaboð ?


Getur verið að kreditkortafyrirtækin VISA o.fl. taki 220 krónur fyrir evruna á sama tíma og þeir geti keypt hana fyrir 131 í banka. Ef svo er, þá er þetta villandi frétt sem ber vitni um lélega blaðamennsku.
mbl.is Gengi krónu fest tímabundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vondir menn á Kúbu.

'i kvöldfréttum á Stöð 2 núna í kvöld, laugardag, var fréttamaðurinn Óli Tynes með frétt frá nýafstöðnu þingi á Kúbu. Hann taldi ameríkumenn ekki hafa verið hissa, en aftur á móti hann og fleiri hefðu vænst að arftaki Fiedels Castro harðstjóra, Raul myndi kynna fleiri tilslakanir og aukið frelsi. Óli og allir hinir urðu fyrir vonbrigðum og voru hneikslaðir þegar Raul bað fólk um að búa sig undir enn meiri erfiðleika vegna efnahagslægðarinnar sem nú hrjáir heimsbyggðina eða eins og stúlkan sem kynnti fréttina orðaði það, að þjóðin ætti að herða sultarólina. Bæði stúlkan og fréttamaðurinn opinberuðu lítið vit á aðstæðum á Kúbu í dag. Þeim væri báðum hollt að líta sér nær.

Væri ekki nær ráðamenn Íslands kæmu með tillögur um einhverjar leiðir til að koma böndum á það óhefta frelsi sem hefur viðgengist í viðskiptalífinu undanfarin misseri og er búið að koma þjóðinni í þann vanda sem hún á við í dag og benda fólki á að búa sig undir enn meiri erfiðleika. Við ættum þó ekki eftir að læra eitthvað af vondu mönnunum á Kúbu ?


Misnotkun á tollvörðum

Það er sök sér að tollverðir geri fíknilyf upptæk, en að þeir skuli vera notaði eins og útverðir okrara á allri almennri vöru er óhæfa og tíðkast hvergi annars staðar. Varningur á Íslandi á að vera í samkeppni við allan heiminn, en tollverðir eiga ekki að vera til þess að vernda fákeppni og einokun.


Verndarar okurs

Það er sök sér að tollverðir séu á eftir ólöglegum innflutningi eiturlyfja, en ég vorkenni þeim í því ömurlega hlutverki sínu, samkvæmt lögum (ólögum), að vera varðhundar og útverðir íslenskrar okurverslunar á almennum varningi sem þrífst í skjóli einokunar eða fákeppni.
mbl.is 27 milljónir króna í sektir í tollinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband